Hátíðarsalurinn er tilvalinn fyrir veisluna
Salurinn tekur
130 manns í sitjandi borðhald
240 manns í leikhús uppstillingu
290 manns í standandi veislu

Bókunarskilmálar Iðnó:

1. Veitingar fara í gegnum Iðnó, samtal um uppsetningu á matseðli og drykkjum er ávallt í boði. 

2. Öll tæknimál verða að fara í gegnum Iðnó og erum við með sérkjör hjá tækjaleigum sem leigutaki hefur aðgang að. Samtal um annað er ávallt í boði en áskiljum við okkur rétt til að hafna eða samþykkja tæknibúnaði sem fer inn í húsið.

3. Salarleigan er greidd við bókun viðburðar og áskiljum við okkur rétt til að halda henni ef hætt er við viðburð innan við 30 dögum fyrir bókaðan dag í húsinu. Bókun telst ekki staðfest fyrr en að salarleiga hefur verið greidd.

4. Matar- og  drykkjarpöntun skal liggja fyrir að lágmarki 10 dögum fyrir viðburð með undantekningu fyrir erfidrykkjur. Greiða þarf 50% af matarpöntunum amk. 5 virkum dögum fyrir viðburð.

5. Leigutaki ber ábyrgð á skemmdum á búnaði og innviðum hússins ef slíkt kemur upp á meðan viðburði stendur.

6. Iðnó tekur ekki ábyrgð á verðmætum gesta sem kunna að glatast eða gleymast á meðan viðburði stendur.