Iðnó - saga hússins

Iðnó var reist af Iðnaðarmannafélagi Reykjavíkur á uppfyllingu út í Tjörnina árið 1896 og tekið í notkun árið eftir. Fóru fyrstu leiksýningar þar fram í febrúar 1897 og var það Thorvaldsens-félagið sem stóð fyrir þeim. Ritstjóri Ísafoldar var hrifinn eftir fyrstu heimsókn á leiksýningu í húsinu:

"Húsnæðið er miklu betra til slíkra hluta en kostur hefir hjer verið á áður, einkum leiksviðið langt um stærra og full- komnara anddyri og aðrar vistarverur í húsinu einnig miklu rýmri og þægilegri. Og þar á ofan ljeku fleiri ýmist vel eða sæmilega heldur en ella gerist hjer af viðvaningum, bæði valizt til í þetta sinn færara fólk yfirleitt og undirbúningur rækilegri."

Lesa nánar um sögu hússins >>

 

Myndasafn - Photos

   

   

   

   


Skjálfvirk fletting - Auotmatic show